Fyrsta plata Misery Loves Company, sem hefur verið tilbúin mjög lengi, hefur loksins litið dagsins ljós og er fáanleg til kaupa á netinu. Það er í gegnum tónlistarvefinn Gogoyoko sem hægt er að versla gripinn, annað hvort í heild eða stök lög, og hlaða niður.
Hægt er að hlusta á plötuna á netinu, án endurgjalds, og kaupa hana með því að smella á myndina hér fyrir neðan.
| Ummæli |
|
Powered by !JoomlaComment 3.26






