Eyvindur Karlsson

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Hvers á að gjalda?

Antíkristur mætturEitt finnst mér svolítið merkilegt. Dindlar VG ríða nú röftum að úthrópa Davíð fyrir að hafa mætt á útifundinn og segja hann vera að mótmæla sjálfum sér (bíddu, var ekki tekið fram að þetta væri samstöðufundur, ekki mótmælafundur?). Nú hef ég alla tíð verið mjög á móti Davíð, en af hverju má hann ekki mæta og sýna samstöðu gegn Icesave eins og aðrir? Af hverju er hann þá að mótmæla sjálfum sér? Ég veit ekki betur en að hann hafi verið mótfallinn þessum samningi frá upphafi. Mér finnst það svo dæmigert fyrir fólk sem getur ekki hugsað út fyrir flokkslínur sínar, sem á óvíða betur við en um blinda VG-liða, að geta ekki komist hjá því að úthrópa menn sem eru þeim á öndverðu meiði, og þá sérstaklega áberandi menn eins og Davíð, jafnvel þegar viðkomandi er þeim sammála. Nei, Sjálfstæðismaður getur aldrei verið sama sinnis og Vinstri grænn. Það bara hlýtur eitthvað óeðlilegt að búa að baki skoðun D-liðans.

Er ég einn um að vera búinn að fá yfir mig nóg af svona hugmyndafræði?

Að lokum lýsi ég yfir harmi og samúð með öllum landsmönnum yfir því að Borgarahreyfingin sé búin að hoppa upp í rassgatið á sér og hverfa í rykskýi. Þetta er grátlegt.

Ummæli
Bæta við Leita
+/-
Þvaður
Nafn:
Netfang:
 
Vefsíða:
Yfirskrift:
UBBCode:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry:
:lol::kiss::D:pinch::(:shock::X:side:
:):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
 
Vinsamlegast skrifaðu inn strenginn af myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Föstudagur, 17 Júlí 2009

Fyrsta plata Misery Loves Company, A Bottle Full of Dreams, er nú loksins fáanleg á tónlistarvefnum Gogoyoko.com.
+ Nánar

Þriðjudagur, 25 Nóvember 2008

Gamla síðan mín varð kreppunni að bráð. Því hef ég smíðað nýja, og vona að hún falli ykkur í geð.
+ Nánar

Hafðu samband

Ég er viðmótsþýður maður og tek tölvupóstum aldrei illa. Ja, nema í eitt skipti, en ég forðast að hugsa um það...

Sendu mér línu hafirðu spurningar eða svör. 


Grín

Ritstörf

Auglýsingar

Tónlist