Eyvindur Karlsson

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Veðrið og folfið

Disc Golf, eða folf, er skemmtileg og holl iðja.

Þeir sem mig þekkja vita að fátt fer meira í taugarnar á mér en þegar fólk kvartar yfir veðrinu á Íslandi. Fullorðið fólk sem hefur búið hér alla sína ævi ætti að vera búið að venjast þessu. Aldrei hef ég heyrt barn kvarta yfir veðrinu, enda eru þau vanalega klædd eftir veðri. En fullorðna fólkið verður alltaf jafn hissa þegar það þarf að draga vetrarúlpuna út úr skápnum.

Hins vegar er eitt sem mér finnst leiðinlegt við íslenska veðráttu. Ég hef ekki nema örlítinn ramma yfir sumarið til að stunda disc golf - uppáhalds íþróttina mína. Í sumar var mikið að gera hjá mér, enda með nýbura á heimilinu, þannig að ég komst ekki nema einu sinni. Nú er farið að blása ansi hressilega og í kjölfarið má vænta þess að kuldinn fari að segja duglega til sín. Og þótt það sé ekki ómögulegt að leika disc golf í frosti er hætt við að maður gæti orðið ansi loppinn á fingrunum, og það væri býsna erfitt að vera með vettlinga. Þannig að ég þarf væntanlega að bíða eftir vorinu... Sem er hálfglatað.

En svona er þetta. Ég hef víst fáa kosti í stöðunni. Bíða eða flýja land. Og ef ég myndi flýja land væri það klárlega ekki vegna veðurs.

Ummæli
Bæta við Leita
+/-
Þvaður
Nafn:
Netfang:
 
Vefsíða:
Yfirskrift:
UBBCode:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry:
:lol::kiss::D:pinch::(:shock::X:side:
:):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
 
Vinsamlegast skrifaðu inn strenginn af myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Föstudagur, 17 Júlí 2009

Fyrsta plata Misery Loves Company, A Bottle Full of Dreams, er nú loksins fáanleg á tónlistarvefnum Gogoyoko.com.
+ Nánar

Þriðjudagur, 25 Nóvember 2008

Gamla síðan mín varð kreppunni að bráð. Því hef ég smíðað nýja, og vona að hún falli ykkur í geð.
+ Nánar

Hafðu samband

Ég er viðmótsþýður maður og tek tölvupóstum aldrei illa. Ja, nema í eitt skipti, en ég forðast að hugsa um það...

Sendu mér línu hafirðu spurningar eða svör. 


Grín

Ritstörf

Auglýsingar

Tónlist